Anna og Gugga Brillera!!

Camouflage!!

29.12.2006 16:02:46 / dabbi

komin

Nú er Vala komin heim til Íslands gott að fá þig heim Vala og flestir vita að hún var úti í Boston allt gekk vel hjá henni sem betur fer þarf ekki að segja neitt meira um það...8) og hef ekkert að segja meira í bili en bara sjáumst síðar bæbæ

8)8)8)Guðbjörg 8)8)8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 01:23:42 / dabbi

the end is near

Jæja þá er komið að lokum minna skrifa á þessa síðu og læt ég síðuna í hendurnar á Guðbjörgu og Önnu Siggu (verið duglegar að blogga) en ég er kominn með nýja bloggsíðu þar sem of margir vissu af þessari þannig að ég gerði bara nýja. Þeir sem vita af nýju síðunni vita að þau eru velkomin þangað (VIP Only) en ég ætla að enda þessa síðustu bloggfærslu með voon um að Gugga og Anna Sigga sjái vel um hana og að skemmta fólki nú nema þær opni sínar eigin síðu hver veit!!!

Góðir tímar

DabbZ

over and out

sign off

» 1 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 22:11:39 / dabbi

Guðbjörg skrifar

Hæ hæ gaman gaman  í gær þá forum við í skólann á venjulegum skóladegi og við æfðum okkur og æfðum okkur því að kl  5 átti að vera bekkjarkvöld

Svo eftir skóla fór ég heim til mí aðeins að sækja til dæmis jakka svo fór ég heim til  vinkonu minnar og við sáum brot af little shop of horrors  því við vorum að fara að sína brot úr þeirri mynd kl: 5  svo forum við upp í skóla það var læst við sáum samt fólk þarna inni svo við bönkuðum og sem betur fer var opnað fyrir okkur þá þurftum við að fara upp í stofu en first við komum svoldið seint þá forum við strax aftur niður í bíósal því að þar var þetta sýnt við áttum að vera first en vinkona mín hafði gleimt geisladisknum í tækinu heima hjá sér svo hún hlóp heim til sýn Rúnar þurfi að segja að þetta væri ekki hægt strax svo annar hópur fékk að vera fyrstur svo kom vinkona mín með geisladiskinn  og við vorum langsíðasta atriðið. J JJ J það mistókst smá en það var allt í lagi áhorfendum var skemmt þegar til dæmis ég sló vinkonuu mina á vitlausum tima of seint það var hræðilegt svo var ég stungin í magann þá datt ég óvart framfyrir mig    í staðinn fyrir að detta til hliðar allavega þá hlógu allir  það var niðurlæganlegt en þá forum við upp í stofu að snæða  og já ég tek sérstaklega fram að Anna var ekki þarna og já  svo forum við heim ég labbaði því að Aðalgeir fór að leita að  Önnu svo Allir komnir heim við Anna förum að sofa .Í morgun þá forum við bara í skólann og svo bara heim nema Anna hún var að fara í handbolta kl 4 og svo í pizzu partí með handboltanum það var búið að leigja spólu Ísöld 2 svo kom anna heim og við borðuðum vinkona Aðalgeirs borðaði með okkur svo þurfri hún að fara kl 9 og núna er Aðalgeir farinn að sækja hana J JJ J og núna er ég bara að skrifa þetta en verð að fara

 

 

 

 

Kv  GUÐBJÖRG

 

 

sé ykkur seinna vona ég :):):):)


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.12.2006 19:04:45 / dabbi

Guðbjörg skrifar

hæ núna er dúna bara á leiðinni til Bostion að filgjast með Völu í aðgerðunum en á laugardaginn fór ég í tvö afmæli til vinkvenna minna á sunnudaginn slappaði ég bara af og í dag fékk ég frí í skólanum og fór út á fluvöll með mömmu og eins og ég sagði Vala þá er hún að koma bíddu bara :lol:

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.12.2006 09:19:04 / dabbi

Guðbjörg skrifar

í dag er ég í skólanum  í tölvum . En ég hef því miður lítið að segja nema það að ég sakna Völu rosa mikið .en geriði það að skrifa inná gestabókina

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.12.2006 00:56:23 / dabbi

reykjavík - boston

jæja þá er valan mín farin til boston á spítala og enn óvíst hvort ég fari en ég ætla að skrifa lítið blogg fyrir ykkur "my babies":) en já fyrirtækið okkar strákanna er allt að smella á stað og það er stútfull dagskrá í gangi en get ekkert sagt hvernig fyrirtæki né nafnið fyrr en við fáum kennitöluna og skráð í firmaskrá svo þessu sé hreinlega ekki bara stolið af okkur en öll plön eru góð og allt að smella saman en í öðrum fréttum þá var djammað á laug (ca 3 kippur stútaðar) þannig að ég var svoldið out of it en djammið byrjaði hjá tengdó hehe:D svo á sunnudag fékk ég heimsókn og þótti mér mjög vænt um það (vona að ég geti bætt fyrir það sem áður var eyðilagt) já vinskapur skiptir miklu máli það er ég búinn að læra en já ég ætla að slútta þessu í bili


Vala Godspeed hon


yfir og út

Teh Ebil Mr DabbZ

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 21:30:32 / dabbi

Guðbjörg skrifar

Hæ þetta er Guðbjörg sem skrifar ég var bara í skólanum frá náttúrulega 8.00  til 14:00 það var svoldið gaman . Svo hélt ég upp á afmælið mitt það var rosalega skemmtilegt við forum í marga leiki svo sem vísbendingaleik, happadrætti (með vinningum)   en ég segi satta var tt þ geðveikur dagur J J  núna eru allir að horfa á tekinn en verð að fara

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.11.2006 21:16:36 / dabbi

Kominn tími á blogg

Jæja loksinns kemur nýtt blogg samt stutt því ég hef engann tíma (sorry karen but you know i'm doing this just 4 you;) en já það er margt búið að gerast hjá mér jeppinn bilað nokkrum sinnum og er bilaður as we speak samt hægt að keyra hann en já svo bara skólinn á fullu og jú fór og gisti með frúnna á Hótel Örk síðustu helgi en þar var á laugardagskvöld árshátíð Ferðaklúbbsinns 4X4 og það var bara gaman þar og notalegt ég kom meira segja upp á big screen fyrir langveiku barna ferðina í vor (svakamontinn) svo er ég að spá í að reyna að kíkja til boston í desember þar sem vala verður þar á spítala og mig langar svoldið að kíkja á hana þar og vera aðeins hjá henni.

En ég ætla að segja þetta gott

over and out

DabbZ

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.08.2006 15:27:34 / dabbi

æði veikur og að fara að vinna

Jæja þar kom að því að maður fékk kvef (enda búinn að vera á stuttermabol og rugl í rigningunni að þykjast vera í sólskini hehe) en já ég er einmitt að fara að vinna þessa helgi á Rallý Reykjavík ég verð svokallaður öryggisvörður en það felst í því að ég verð á jeppanum einhverstaðar á miðri sérleið (sérleið er bara leiðin sem rallið er á ef þið vitið ekki) og rallý bílstjórar og Co-arar geta komið í jeppann hjá mér og ég kalla á aðstoð í VHF talstöðina ef slys hefur komið fyrir eða eitthvað í þá áttina. Þetta er nú ekki fyrsta skipti sem ég vinn á rally hef gert það frá því ég var í gaggó og það er alltaf jafn gaman hehe. En já mér skylst að karen sé á spáni og ása að fara til spánar:( allir að fara til spánar nema ég!!!!!!! en jæja ég fer sennilega til Boston í sept-okt og svo fer að líða að því að við pabbi förum til LA að leita að almennilegri Corvettu fyrir okkur það er sko ákveðin gerð eða þar að segja Stingray sem við erum að leita að en það er semsagt dýrari og kraftmeiri týpan með öflugri vél:D  getur líka verið að hún sé til í Las Vegas en við tjekkum á því og tökum smá Texas Hold'em Póker:D drekkum nokkra bjóra og étum góðann mat það er það sem við pabbi ætlum að gera úti. En já nú fer veturinn að koma og ég ætla að kenna Axel litla frænda á snjóbretti honum hlakkar ekkert smá til hehe talar ekki um annað þegar ég hitti hann en hann er orðinn 4 ára í desember.

Segjum þetta gott

Dabbi Camo
Snjóræningi

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.07.2006 02:17:56 / dabbi

fyrir stelpurnar mínar

dabbi er hættur (í bili) að drekka!!!!!!!!!!! en lítið að frétta jeppinn bilaður búinn að vera með biggabíl og bílflutningakerru bilað fyrir austan þ,a,s kerruna sem hiluxinn hans bigga var uppá þegar við vorum að ferja hann í bæinn þá bilaði draslið og já margar ferðir austur og ein annaðkvöld og dabbinn kominn á fast fann loksinns stelpu sem er ekki jú nó og komið ár síðan ég hætti í rugli jeijjj

dabbZ out

love'ya girlz

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.06.2006 21:26:59 / dabbi

jæja

Jæja þetta tókst hjá mér og ég er svooo stoltur en já ég semsagt fékk hugdettuna um ferðina sem ég sagði ykkur frá ferðin var farin þann 20 maí sl með um 100 manns allt í allt innanborðs á 30 jeppum farið var frá mörkinni 4 kl 9 í 2 hópum og haldið á hvolsvöll þar sem var stoppað og hópurinn þéttur og hóparnir sameinaðir þar fékk fólk tíma til að fara á klósett og teygja úr sér og fara í annann birgðarbílinn og ná sér í kalt að drekka svo var haldið af stað á jökul og farið var á mýrdalsjökul en fengum við 2 auka bíla með í för við heimaland sem er félagsmiðstöð sem styrkti okkur með húsnæði kem betur að því seinna en svo var það hvítagullið og við rætur jökulsinns voru allir með stillt á ríkisútvarpið vegna viðtals nr 2 sem tekið var við mig viðtal eitt var fyrir 9 i mörkinni og var það sjónvarpsviðtal fyrir kvöldfréttir, en já fyndið að heyra í sjálfum sér í útvarpinu en svo var haldið upp á hábungu eða topp mýrdalsjökuls rétt neðan fyrir toppinn bilaði landcrusier 80 hjá benna hmm og farið var í að laga það en flestir komust nú uppá toppinn nema örfáir bílar og ferjuðum við þá fólk sem var í bílum sem ekki komust upp uppeftir. Meðan verið var að gera við jeppann hjá Benna Hmm þá var farið í leiki hádegismatur frá júmbó og sóma og ölgerðinni borðaður og góðhjartaðir vélsleða menn tóku börnin smá hring á sleðunum og svo var haldið þaðan niður fimmvörðuháls niður af jöklinum og svo stoppað og pumpað í dekkin svo var dólað í 32 bíla halarófu niður á skóga að klára að fullpumpa í dekk þaðan var haldið í heimaland þar sem litladeildin var byrjuð að grilla en þá var kl um 17 og komum við í steikur og pulsur frá SS og gos og djús frá Ölgerðinni KB Banki gaf boli sem stelpurnar í klúbbnum tóku myndir af fjölskyldum sem komu með fyrir framann þeirra jeppa sem þau voru í og prentuðu á bolina og gáfum við hverjum og einum bol með sínu nafni og mynd og eftir grillveisluna spjall og skemmtilegheit var haldið af stað í bæinn þetta var hreint frábær dagur í alla staði og var ég kosinn í að gera þetta að árlegum viðburði sem ég ætla að gera og voru allir sammála að það hefði engu breytt þótt við hefðum eyðilagt bíla okkar þessi bros hjá þessum börnum voru ómetanleg svo á mánudagsmorgun var 3ja viðtalið og var það bein útsending á kissFm og svo var viðtal í fréttablaðinu svo nú hef ég prófað held ég alla fjölmiðla

en í öðrum fréttum þá er lítið að frétta bara sama og vanalega en 1sta helgin í júlí Þórsmörk ef þú villt koma með þá læturu mig vita

segjum þetta gott

ég out

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.05.2006 02:41:37 / dabbi

smella smá inn fyrir stelpurnar mínar

Jæja lítið að frétta hérna var að koma inn eftir ca 12 tíma drykkju..... byrjaði í góða veðrinu og endaði með því að bærinn lokaði á okkur reyndar gerðist það líka í gær en þá var bara ca 10 tíma drykkja... alltaf gaman þegar Biggi kemur í bæinn en hann fer víst á morgun:frown: En já Könnurnar okkar Bigga eru í merkingu og munu svo hanga uppá vegg á barnum okkar þegar við erum ekki að nota þær en þæ verða víst með nöfnum okkar S,s Biggi og svo Dabbi.. fyrir neðan Carlsberg merkið og á víst að vera í sama eða svipuðum lit en já nenni ekki að röfla meira um bjór það sem er að gerast er það að jeppaferðar hugdettan mín varð að  veruleika um 30 bílar skráðir og rúm 25 langveik börn þegar ég tjekkaði í dag við förum 20 mai á stað sem ekki hefur verið gefinn upp(má ekki segja vegna fjölmiðla sem er rugl) og það verður jeppast og grillað og allt saman kominn með spons hjá SS Ölgerðinni Rekstrarvörum og er að vinna í sóma og erum svo komin með skála til að grilla í á góðum stað svo þetta verður bara frábært sko en já ég læra undir próf svo later

Dabbz out

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.04.2006 16:24:42 / dabbi

lítið að fretta

jæja mér tókst ekk enn að hætta að reykja en ég minnkaði drykkjuna aðeins:D annars er allt gott að frétta hér bara búinn að vera skóli jeppatúrar viðgerðir heimsóknir og svona þetta vanalega en jú ég er núna að efna til minnar fyrstu fjallaferðar undir flaggi ferðaklúbbsinns 4x4 en þetta er ferð sem ég er að halda fyrir langveik börn þ,a,s að taka langveik börn með okkur og leyfa þeim að komast í smá jeppaferð og skoða jökul tekið er stefna á að fara úr bænum upp í jaka þar sem borðað verður nesti sem við fáum vonandi frá einum aðila sem við erum að semja við fara svo þaðan upp í íshellana og skoða þá og svo aftur niður í skálann jaka og þar sem verður grillað grillmat sem SS byður uppá en þeir sjá okkur fyrir sælgæti og grillkjöti og svo ölgerðin ætlar að leggja út gos og djús og drykkjarföng handa okkur og svo fékk ég mail frá fréttamanni sem er jeppamaður líka um þetta og ræddi ég um það við nokkra klúbbfélaga mína og mun fréttamaður og blaðaljósmyndari með í ferðinni en hún verður 20 mai ég byrjaði á þessu í gær og er allt þetta komið núþegar og 11 bílar búnir að staðfesta komu sína með sætaplássi fyrir yfir 30 manns svo þetta verður vonandi bara æðisleg ferð en ég ætla að láta þetta gott í bili og fara að halda áfram það er nóg að gera

kvitt or die

Dabbz

» 2 hafa sagt sína skoðun

06.04.2006 22:03:52 / dabbi

smá færsla

ákvað að koma með smá svona þar sem hausinn á mér er að bráðna undan lærdómi en já ég er að hætta að reykja og gengur bara vel og það er nuna bannað að reykja heima hjá mér og svo er ég að minnka bjórdrykkjuna 7 dagar í viku er svoldið margir dagar af vikunni sko ef maður pælir í því. En já í other news dempararnir komnir í viðgerð og trukkurinn fer að komast á lappirnar aftur ætla reyndar að henda honum aðeins inní skúr og skera aðeins betur úr honum sérstaklega að aftan, og kannski skipta um svuntu og ætli ég bóni hann ekki líka dekra aðeins við hann svona fyrst maður er að byrja á annað borð og svo þarf að ganga frá einu og öðru í honum eins og t,d bæta kösturum á hann og svona en ég ætla mér að verða tilbúinn í páskatúrinn og taka hann með trompi. Reykna með að ég dragi Ásu til að kóa ef hún verður í fríi (þá veistu það ása mín) en silvían hans einsa verður örugglega með og kannski blái fiðringurinn hans bigga þannig að það er nóg pláss fyrir fólk mat og áfengi svo er óstaðfest um að tveir aðrir komi með en það eru bronco og range rover (game over) báður á 38" með 8 gata slípirokk í húddinu. þetta á allt efir að skýrast og koma í ljós En ég er að spá í að hoppa í ljós og taka lengri pásu frá lærdómnum


adios

Dabbz

kvittið og ekkert rugl

» 2 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 02:13:17 / dabbi

stolið frá ásu minni:D

stal þessu frá asu en þar sem ég er alltaf að vera klukkaður þá læt ég ykkur gera þetta:D annars er lítið að frétta dempararnir komnir undan jeppanum fer með þá uppeftir á morgun skrapp út í gær í saklausann bjór en það endaði náttúrulega á nasa og eitthvað tómt rugl og ég man ekki of vel restina en nenni ekki að skrifa meir

Dabbz

Nafn þitt?

 Hvar kynntumst við?

 Hversu lengi hefurðu þekkt mig?

 Hversu vel þekkiru mig?

 Hvaða tegund reyki ég?

 Hvað er uppáhalds skotið mitt?

 Hvað hugsaðiru fyrst þegar þú sást mig?

 Hefuru nokkru sinni öfundað mig?

 Manstu eftir því fyrsta sem ég sagði við þig?

 Hvernig tegund af tónlist hlusta ég oftast á?

 Er ég fyndinn?

 Hef ég einhveja sérstaka hæfileika?

 Ef það væri eitthvað flott gælunafn á mig hvað mundi það þá vera?

 Hver er uppáhalds minning þín um eitthvað sem við höfum gert saman?

 Heldurðu að við eigum eftir að vera vinir í framtíðinni?

 Hvaða vin held ég mest uppá?

 Hef ég hjálpað þér?

 Hefur þú hjálpað mér?

 Þykir þér vænt um mig?

 Er ég sannur vinur?

 Langar þig að faðma mig?

:haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
fólk sem kann að blogga